Fara í efni

Skipan í fastanefndir Landssamtaka lífeyrissjóða

Á fundi stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða (LL) 28. júní sl. var skipað í fastanefndir fyrir starfsárið 2016 - 2017. Eftirfarandi starfsmenn sjóðsins voru skipaðir í fastanefndir LL.

Þóra Jónsdóttir, hdl. sviðsstjóri réttinda- og lögfræðisviðs var skipuð í réttindanefnd LL.

Guðmundur Friðjónsson, sviðsstjóri eignastýringarsviðs var skipaður í eigna- og áhættustýringanefnd LL.

Kristbjörg Stephensen, formaður stjórnar Brúar lífeyrissjóðs og Þórdís Hadda Yngvadóttir, verkefnastjóri, voru skipaðar í samskiptanefnd LL.

Nánar um fastanefndir Landssamtaka lífeyrissjóða.