Fara í efni

Séreignarsparnaður

Séreignarsjóður er einstaklingsbundinn sparnaður og verður til þegar iðgjöld eru lögð inn á reikning og ávöxtuð. Þá myndast sjóður sem losnar þegar þú nálgast eftirlaunaaldur en hann er algjörlega þín eign og erfist að fullu. Í lífeyrismálum er bæði er hægt að ráðstafa hluta af skylduiðgjaldi í séreign og greiða valfrjálsan viðbótarlífeyrissparnað.

Sjóðfélögum okkar er velkomið að gera samning um séreignarsparnað. Samstarfsaðili okkar í séreignarmálum er Almenni lífeyrissjóðurinn en þar er hægt að velja um sjö mismunandi ávöxtunarleiðir séreignarsparnaðar.

 

 

Viðbótarlífeyrissparnaður

Frjáls viðbótarsparnaður launþega með þátttöku launagreiðenda.

  • Framlag einstaklings nemur oftast 2-4% af launum.
  • Mótframlag launagreiðanda er yfirleitt 2% til viðbótar og líta má á sem launahækkun.
  • Sparnaðurinn er alfarið eign viðkomandi einstaklings og erfist að fullu.
  • Sparnaðurinn er laus við 60 ára aldur.
  • Sparnaðinn er hægt að nýta skattfrjálst fyrir útborgun á fyrstu íbúð eða til að greiða aukalega inn á fasteignalán. Sjá nánar á skatturinn.is.

Umsókn um viðbótarlífeyrissparnað | Almenni lífeyrissjóðurinn

 

 

 

Hluti skylduiðgjalds í séreign

Sjóðfélagar í V deild geta ráðstafað hluta skylduiðgjalds í séreignarsparnað.

  • Ráðstöfun 3,5% af skylduiðgjaldi í séreign, eða það sem er umfram 12%.
  • Til þess að nýta skiptingu iðgjalds er skilað inn umsókn en þá þarf að vera með samning við vörsluaðila séreignar.
  • Inneign er laus til útborgunar við 60 ára aldur og geta sjóðfélagar ráðið hvort þeir taka inneignina út í einu lagi eða dreifa úttektinni yfir lengri tíma.

Sækja um aðild að V deild og skiptingu iðgjalds

Samningur um 3,5% í séreign | Almenni lífeyrissjóðurinn

 

 

 

Sjö ávöxtunarleiðir

hjá Almenna lífeyrissjóðnum

Samstarfsaðili okkar í séreignarmálum er Almenni lífeyrissjóðurinn en hann hefur áratuga reynslu af rekstri séreignasjóða og hefur skilað góðri langtímaávöxtun ásamt því að leggja áherslu á góða upplýsingagjöf til sjóðfélaga.

Hægt að velja um sjö mismunandi ávöxtunarleiðir séreignarsparnaðar.

Ævileiðin byggir á því að inneign sjóðfélaga er ávöxtuð í verðbréfasöfnum sem taka mið af aldri sjóðfélaga, ævisöfnum I-III. Sjá nánar fyrir neðan.

Ávöxtunarleiðir | Almenni lífeyrissjóðurinn

 

 

 

 

Ævileiðin hjá Almenna


Ævileiðin byggir á því að inneign sjóðfélaga er ávöxtuð í verðbréfasöfnum sem taka mið af aldri sjóðfélaga. Þar er ævinni skipt í þrjá hluta:

  • Fram til 44 ára aldurs er inneign ávöxtuð í Ævisafni I
  • Á aldrinum 45 til 48 ára aldurs flyst inneign í jöfnum áföngum í Ævisafn II
  • Á aldrinum 57 til 60 ára flyst inneign í jöfnum áföngum í Ævisafn III

Í Ævileiðinni er inneign flutt á milli safna eftir aldri sjóðfélaga, án kostnaðar.

Almenni mælir með að sjóðfélagar velji sér safn eftir áhættuþoli sem ræðst meðal annars af ávöxtunartíma. Ævileiðin hentar því fyrir flesta.

Í Ævileiðinni er innbyggð áhættudreifing sem felst í því að hlutfall hlutabréfa lækkar með aldri um leið og vægi skuldabréfa fer vaxandi.

 

Ævileiðin | Almenni lífeyrissjóðurinn

 

 

 

Almenni og Brú vinna saman

Af hverju valdi Brú að vera í samstarfi með Almenna?

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur áratuga reynslu af rekstri séreignarsjóða, hefur skilað góðri langtímaávöxtun og leggur áherslu á góða upplýsingagjöf til sjóðfélaga.

Með samstarfinu vill Brú upplýsa sjóðfélaga sína um góðan kost.

Hvers vegna vill Brú geta boðið upp á séreignarsparnað?

Á síðustu árum hefur áhugi á séreignarsparnaði aukist, meðal annars vegna hækkunar á skylduiðgjaldi í lífeyrissjóð og auknum sveigjanleika til að greiða í séreign.

Af hverju stofnar Brú ekki sína eigin séreignardeild?

Brú skoðaði þann möguleika að stofna að nýju séreignardeild og deild fyrir skyldusparnað í séreign en niðurstaða greiningarvinnu var að slíkt væri kostnaðarsamt og óhagkvæmt fyrir sjóðfélaga.