10.12.2018
Almennt
Ný stjórn tekur til starfa þann 11. desember 2018. Hana skipa Auður Kjartansdóttir, Halldóra Káradóttir, Sonja Ýr Þorbergsdóttir og Þorkell Heiðarsson sem koma ný inn í stjórnina en auk þeirra sitja þeir Benedikt Valsson og Garðar Hilmarsson. Úr stjórninni ganga Elín Björg Jónsdóttir, Kristbjörg Stephensen, Salóme Þórisdóttir og Sigurbergur Ármannsson. Sjóðurinn þakkar þeim fyrir vel unnin störf.