Fara í efni

Lífeyrissjóðurinn þinn - sögubrot af mæðgum

Hún var stór stundin í Saint Étienne í Frakklandi þegar Ísland mætti Portúgal í fyrsta leik sínum á EM karla í fótbolta 2016. Stundin var líka stór fyrir lífeyrissjóðina því í auglýsingatíma útsendingarinnar var frumsýnd leikin auglýsing sem Dagur Hilmarsson og kvikmyndaframleiðandinn Republik ehf. gerðu fyrir Landsamtök lífeyrissjóða.

Hér birtist sögubrot af mæðgum (raunverulegum!), í fallegu umhverfi. Móðirin lítur til baka en dóttirin fram á veg og heldur út í lífið. „Lífeyrissjóðurinn þinn“ er bakhjarl beggja.

Sjón er sögu ríkari.