01.03.2024
Almennt
Upplýsingar um lífeyrisskuldbindingu 31.12.2023 í A deild:
Sjóðurinn hefur nú sent út upplýsingar til þeirra launagreiðenda sem eru með lífeyrisskuldbindingu í A deild. Upplýsingar voru sendar í gegnum Signet transfer og ættu launagreiðendur að hafa móttekið slíka sendingu frá sjóðnum.
Ef einhverjar spurningar vakna er velkomið að hafa samband við okkur í síma eða með því að senda okkur tölvupóst á netfangið lifbru@lifbru.is.