30.08.2024
Almennt
Innskráning með Íslykli fellur úr gildi og við tekur ný innskráningarleið á innri síðum sjóðsins.
Fyrir Launagreiðendavef og innri vefinn Lífeyrisréttindin mín birtist núna ný innskráningarsíða fyrir notendur. Ýmist er hægt að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum síma, kort eða auðkennisapp.
Sjóðfélagar búsettir erlendis og eru með erlend símanúmer geta stuðst við Auðkennisappið eða Evrotrust app til þess að skrá sig inn á Lífeyrisréttindin mín.
Til skýringar eru innri vefir sjóðsins þrír talsins:
- Mínar síður - Umsóknir og lánayfirlit.
- Lífeyrisréttindi mín - Iðgjaldayfirlit, áunnin lífeyrisréttindi og yfirlit yfir lífeyrisgreiðslur lífeyrisþega.
- Launagreiðendavefur - Launagreiðendur geta skilað inn skilagreinum til sjóðsins