Fara í efni

Fréttir og tilkynningar

Almennt LSR

Hægari símsvörun

Móttaka Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar er enn lokuð vegna COVID-19. Vegna aðstæða má búast við því að símsvörun sé hægari. Nái sjóðsfélagar ekki sambandi er hægt að senda erindi á tölvupóstföng deildanna.
Almennt

Sjóðirnir loka vegna neyðarstigs almannavarna.

Móttaka Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður lokuð frá og með mánudeginum 5. október vegna COVID-19. Starfsfólk sjóðsins mun áfram sinna sínum verkefnum en gera má ráð fyrir skerðingu á þjónustu þannig að afgreiðsla mála geta tekið lengri tíma.
Almennt

Viljayfirlýsing um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar undirrituð í dag

Í dag undirrituðu Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, og aðilar sem fara fyrir hátt í 80% af eignum á íslenskum fjármálamarkaði „Viljayfirlýsingu um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar“. Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), Landssamtök lífeyrissjóða (LL) og Forsætisráðuneytið unnu að mótun hennar í víðtæku samráði við fulltrúa helstu aðila á fjármálamarkaði.