20.12.2024
Almennt
Stjórn sjóðsins hefur samþykkt að hefja viðræður við stjórn Lífeyrissjóð starfsmanna Akureyrarbæjar (LSA) um samruna miðað við 1. janúar 2025, þannig að sá sjóður verður sérstök deild í Brúnni. Slíkur samruni mun fela í sér að réttindi og réttindaávinnsla sjóðfélaga LSA verða óbreytt sem og bakábyrgð Akureyrarbæjar. Þá verða eignir og skuldbindingar LSA algjörlega aðskildar frá öðrum eignum og skuldbindingum sjóðsins.