11.06.2024
Almennt
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.
Verðtryggðir breytilegir vextir verða 4,1%, verðtryggðir fastir vextir 4,2% og vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 10,0%.