13.11.2023
Almennt
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.
Óverðtryggðir breytilegir vextir verða 9,2%, verðtryggðir breytilegir vextir 3,7%, verðtryggðir fastir vextir 4,3% og vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 10,2%. Sjá nánar í vaxtatöflu.