06.05.2022
Almennt
Benedikt Þór lést fimmtudaginn 28. apríl sl. en hann hefur verið í stjórn sjóðsins frá 2014. Hann var stjórnarformaður sjóðsins á árunum 2019 til 2021 og varaformaður frá 2021.
Benedikt var með M.Sc. gráðu í þjóðhagfræði frá Göteborgs Universitet í Svíþjóð og starfaði sem hagfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Benedikt var afar vel liðinn meðal stjórnar-og starfsfólks sjóðsins enda með ljúfa lund og vel að sér í málefnum sjóðsins.
Stjórn og starfsfólk sjóðsins senda fjölskyldu Benedikts innilegar samúðarkveðjur.
Útför Benedikts Þórs Valssonar fer fram frá Grafarvogskirkju, fimmtudaginn 12. maí kl. 13:00.