28.03.2023
Almennt
LSR
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður haldinn mánudaginn 17. apríl kl. 13.00 í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs, Sigtúni 42, Reykjavík
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur 2022
- Tryggingafræðileg athugun
- Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
- Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
- Kynning á breytingum samþykktum sjóðsins
- Önnur mál
Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum og eru hvattir til að mæta á fundinn.