Fara í efni

Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar

Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar

Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar var stofnaður með samþykkt bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar þann 26. mars 1956. Þann 1. júlí 1998 var sjóðnum lokað fyrir nýjum sjóðfélögum. Þeim einum sem greiddu til sjóðsins í júní 1998 er heimilt að greiða áfram til sjóðsins, enda hafi iðgjald verið greitt til sjóðsins óslitið frá þeim tíma. Þetta eru þeir sem greiddu iðgjöld vegna starfa hjá Akraneskaupstað, stofnunum bæjarins, sjálfseignarstofnunum eða félögum skrásettum á Akranesi sem bæjarfélagið á aðild að og voru iðgjaldsskyld til sjóðsins. Frá 1. janúar 2007 hefur Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga annast rekstur sjóðsins.

Sumarið 2013 gekk sjóðurinn inn í B-deild Brúar lífeyrissjóðs, ásamt fjórum öðrum sveitarfélagssjóðum og er nú vísað til réttindasafns sjóðsins í daglegu tali.

Tilgangurinn með sameiningunni var að einfalda utanumhald og lækka rekstrarkostnað. 

Með sameiningunni var áhersla lögð á að réttindi sjóðfélaga héldust óbreytt sem og réttindaávinnsla til framtíðar.

Bankábyrgð sveitarfélagsins hélst óbreytt og hún sérgreind fyrir sjóðinn. 

Samþykktir Brúar lífeyrissjóðs 

Réttindaákvæði úr samþykktum Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar

1.gr. Iðgjöld sjóðsins.

1.1

Óheimilt er að taka við nýjum sjóðfélögum frá 1. júlí 1998 sbr. lög nr. 129 frá 1997.

1.2

Rétt til greiðslu iðgjalda til sjóðsins eftir 1. júlí 1998 hafa sjóðfélagar sem eru starfs¬menn Akraneskaupstaðar, stofnana hans og sjálfseignarstofnana sem hafa lög¬heimili í kaupstaðnum og starfa í þágu almennings. Þeir skulu vera ráðnir til minnst eins árs eða með minnst þriggja mánaða uppsagnarfresti í eigi minna en hálfu starfi, enda sé aðalstarf þeirra í þjónustu kaupstaðarins eða stofnana hans og þeir taki laun skv. kjara¬samningi St. Ak. og Akraneskaupstaðar. Undir þetta ákvæði falla hlutastörf, þó ekki minna en hálft starf, enda stundi starfsmaður fast samfellt starf og hafi ekki á hendi annað aðalstarf í þjónustu bæjarins.

1.3

Rétt til greiðslu iðgjalda til sjóðsins hafa þeir starfsmenn Akranesveitu er við sameiningu Akranesveitu og Orkuveitu Reykjavíkur 1. janúar 2002 greiddu iðgjöld til sjóðsins. Þeir skulu ráðnir til minnst eins árs eða með minnst þriggja mánaða uppsagnarfresti, enda sé aðalstarf þeirra í þjónustu Orkuveitunnar. Undir þetta ákvæði falla hlutastörf, þó ekki minna en 1/3 úr fullu starfi, enda stundi starfsmaður fast samfellt starf og hafi ekki á hendi annað aðalstarf í þjónustu bæjarins.

1.4

Iðgjald sjóðfélaga skal vera 4% af föstum launum hans og vaktaálagi samkvæmt 2.3.

1.5

Iðgjald launagreiðanda er 8% af föstum launum sjóðfélaga og vaktaálagi samkvæmt 2.3.

1.6

Þegar sjóðfélagi hefur greitt iðgjöld til sjóðsins í 32 ár, falla iðgjaldagreiðslur hans niður, svo og iðgjaldagreiðslur launagreiðanda hans vegna samanber þó 4.6. Eftir að iðgjalda¬greiðslur falla niður samkvæmt þessari málsgrein eða samkvæmt 95 ára reglu, sbr. gr. 4.6, skal launagreiðandi greiða 12% af launum þeim sem tilgreind eru í 2. mgr. þessarar greinar í iðgjalda til sjóðsins, sbr. þó 49. gr.

1.7

Sjóðfélagar bera eigi ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins nema með iðgjöldum sínum.

1.8

Launagreiðanda ber að halda iðgjöldum launþega eftir af launum hans og greiða þau til sjóðsins innan 11 daga frá útborgun launanna ásamt eigin iðgjaldahluta. Áskilinn er réttur til þess að reikna dráttarvexti (dagvexti) frá útborgun launa, ef greiðsla dregst frekar.

1.9

Launþegi, sem yngri er en 16 ára, greiðir eigi iðgjöld til sjóðsins enda öðlast hann eigi réttindi sjóðfélaga fyrr en hann hefur náð nefndum aldri.

2.gr. Vaktavinnufólk

2.1

Vaktavinnufólk, það er þeir sjóðfélagar sem hafa vinnutíma sem hreyfist með reglubundnum hætti, skal fá rétt til sértaks viðbótarlífeyris (ellilífeyris, örorkulífeyris eða makalífeyris) úr Lífeyrissjóði Akraneskaupstaðar, enda sé þeim skylt að greiða iðgjald af vaktaálagsgreiðslum til sjóðsins.

2.2

Sama gildir um það starfsfólk sem hefur vinnuskyldu eingöngu á nóttinni, það er á tímabilinu frá kl. 22:00 - 09:00 og skal þá álagsgreiðslan verða grundvöllur iðgjalda og lífeyrisréttinda.

2.3

Sjóðfélagi greiði 4% af vaktaálaginu í iðgjöld og launagreiðandi 8%.

2.4

Stjórn lífeyrissjóðsins ákveður á hverjum tíma hver skuli vera viðmiðunarmánaðarlaun þau sem lífeyririnn ákvarðast af og iðgjaldið er metið eftir.

2.5

Breyti stjórn lífeyrissjóðsins viðmiðunarmánaðarlaunum, skal hún jafnframt ákveða hvort og þá hvernig skuli umreikna áunninn lífeyrisrétt fyrri ára.

2.6

Iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga af vaktaálagi skulu ár hvert metnar þannig til lífeyrisréttinda, að reiknað sé hvað iðgjaldagreiðslur ársins samsvara margra mánaða iðgjaldagreiðslu af viðmiðunarlaunum.

2.7

Fyrir jafngildi hverrar 12 mánaða iðgjaldagreiðslu, ávinnst réttur til ellilífeyris og örorkulífeyris sem nemur 2% af viðmiðunarlaunum og réttur til makalífeyris sem nemur 1% af viðmiðunarlaunum.

2.8

Sjóðfélagar, sem unnið hafa vaktavinnu á undaförnum árum, eiga rétt á að kaupa sér sérstakan viðbótarlífeyrisrétt sem nemur allt að 2 árum, enda hafi ekki áður verið greitt iðgjald af þeim launum.

3.gr. Lífeyrir.

3.1

Sjóðurinn greiðir sjóðfélögum ellilífeyri og örorkulífeyri og eftirlátnum maka þeirra og börnum lífeyri samkvæmt ákvæðum þeim sem hér fara á eftir, sbr. einnig um sambúðarfólk í 6. gr., tl. 9, 10 og 11 hér á eftir.

4.gr. Ellilífeyrir.

4.1

Hver sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins og orðinn er fullra 65 ára að aldri, á rétt á árlegum ellilífeyri úr sjóðnum, enda láti hann af starfi sínu. Skylt er sjóðfélaga að láta af starfi sínu, þegar hann er orðinn 70 ára nema sérstök samþykkt bæjarstjórnar komi til. Teljast árin eftir 70 ára aldur ekki með starfstímanum, þegar upphæð eftirlauna er ákveðin, nema iðgjaldagreiðslutíma sé ólokið.

4.2

Hefji sjóðfélagi töku lífeyris í beinu framhaldi af því að hann lætur af starfi, sem veitti honum aðild að sjóðnum skal upphæð ellilífeyris vera hundraðshluti af þeim föstu launum fyrir dagvinnu og persónuuppbót samkvæmt kjarasamningi, sem við starfslok sjóðfélaga fylgdu þeirri stöðu sem sjóðfélagi gegndi síðast. (sjá þó 4.7. og 11.1.) Eftir að taka lífeyris er hafin breytist upphæð lífeyris eftir ákvæðum 9.1. eða 9.3. greinar.

4.3

Hefji sjóðsfélagi ekki töku lífeyris í beinu framhaldi af því að hann lætur af starfi sem veitti honum aðild að sjóðnum skal upphæð ellilífeyris ákveðin þannig:

a) Sjóðfélagi hefur greitt í a.m.k. þrjú ár til sjóðsins en látið af starfi sem veitti honum aðild að sjóðnum. Skal þá miða lífeyrir úr sjóðnum við þau laun sem iðgjöld voru síðast greidd af til sjóðsins með breytingum í samræmi við meðalbreytingar, sem urðu á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu frá því og þar til taka lífeyris hefst sbr. 9.1. grein. Hafi hann látið af starfinu fyrir 1. september 2003 skal þó miða við þau laun, sem því starfi fylgdu til 1. september 2003, en eftir það samkvæmt framangreindri reglu.

b) Sjóðfélagi hefur greitt í a.m.k. þrjú ár til sjóðsins og á rétt á viðmiðun við hærra launað starf en það sem hann greiddi síðast af til sjóðsins sbr. 4.4., 4.5. og 4.6. grein. Skal þá miða lífeyri úr sjóðnum við þau laun sem hærra launaða starfinu fylgdu þegar hann lét af því starfi með breytingum í samræmi við meðalbreytingar sem urðu á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu frá því og þar til taka lífeyris hefst, sbr. 9.1. grein. Hafi hann látið af starfinu fyrir 1. september 2003 skal þó miða við þau laun sem hærra launaða starfinu fylgdu til 1. september en eftir það samkvæmt framangreindri reglu.

c) Sjóðfélagi hefur greitt í minna en þrjú ár til sjóðsins og fer á lífeyri án þess að það sé í beinu framhaldi af starfi sem veitti honum aðild að sjóðnum. Skal þá miða lífeyrinn við þau laun sem iðgjöld voru síðast greidd af til sjóðsins.

d) Sjóðfélagi átti aðild að sjóðnum vegna niðurlagningar á stöðu skv. grein 11.3. Skal þá miða lífeyrinn við þau laun sem iðgjöld voru síðast greidd af til sjóðsins með breytingum í samræmi við meðalbreytingu sem verða á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu frá því og þar til taka lífeyris hefst, sbr. 9.1. grein. Hafi hann látið af iðgjaldagreiðslum til sjóðsins fyrir 1. september 2003 skal þó miða við laun í því starfinu, sem iðgjöld hans voru miðuð við 1. september 2003 en eftir það samkvæmt framangreindri reglu.

Eftir að taka lífeyris er hafin breytist upphæð lífeyris eftir ákvæðum 9.1. grein.

4.4

Hafi sjóðfélagi gegnt hærra launuðu starfi eða störfum í að minnsta kosti 10 ár fyrr á sjóðfélagatíma sínum hjá sjóðnum, skal miða lífeyrinn við hæst launaða starfið, enda hafi hann gegnt því í að minnsta kosti 10 ár, ella skal miða við það hærra launaða starf, sem hann auk enn hærra launaðra starfa gegndi í að minnsta kosti 10 ár.

4.5

Hundraðshluti lífeyris er 2% fyrir hvert ár, sem iðgjöld hafa verið greidd til sjóðsins. Fyrir hvert iðgjaldafrjálst ár þar til sjóðfélaginn öðlast rétt til ellilífeyris bætist 1%, en 2% fyrir hvert iðgjaldafrjálst ár eftir það (sjá þó 4.6. og 4.7.).

4.6

Þegar sjóðfélagi hefur náð því að samanlagður lífaldur hans og iðgjaldagreiðslutími er 95 ár, hann er orðinn 60 ára og ekki 64 ára, á hann rétt á lífeyri úr sjóðnum enda láti hann af störfum. Sjóðfélagi, sem notfærir sér þessa reglu, skal greiða iðgjald til sjóðsins þar til 95 ára markinu er náð en ekki lengur. Lífeyrisréttur hans skal vera 2% fyrir hvert iðgjaldagreiðsluár, en hlutfallslega lægri fyrir minna starfshlutfall, en þó ekki meir en 64% að náðu 95 ára markinu. Fresti sjóðfélagi töku lífeyris fram yfir 95 ára markið, vex lífeyrisrétturinn um 2% fyrir hvert frestað ár. Lífeyrisréttur skal aukast um 2% í fullu starfi frá því iðgjaldagreiðsluskyldu lýkur og þar til taka lífeyris hefst. Notfæri sjóðfélagi sér ekki þessa reglu áður en hann nær 64 ára aldri, skal um iðgjaldagreiðslu hans og lífeyrisrétt fara eftir hinni almennu reglu um lífeyri og þá endurgreiða honum iðgjaldagreiðslur umfram 32 ár í fullu starfi.

4.7

Lífeyrir sjóðfélaga, sem ekki hefur verið í fullu starfi allan iðgjaldagreiðslutíma sinn, miðast við meðalhundraðshluta í starfi, annars vegar þann tíma sem gefur 2% á ári og hins vegar við tíma, sem gefur 1% á ári. Láti sjóðfélagi sem náð hefur 65 ára aldri af starfi sínu að hluta, er stjórn sjóðsins heimilt að úrskurða hlutfallslega lífeyri. Lífeyri vegna þess hluta starfsins, sem hann heldur áfram skal úrskurða, þegar hann lætur að fullu af starfi.

4.8

Fyrir jafngildi hverra 12 mánaða iðgjaldagreiðslu vakta- og næturvinnufólks (sjá 2.6.) er greiddur viðbótarellilífeyrir, sem nemur 2% af viðmiðunarlaunum (sjá 2.4.).

4.9

Heimilt er stjórn sjóðsins að greiða ellilífeyrisþegum á aldrinum 65 til 67 ára uppbót á ellilífeyri allt að einstaklingslífeyri almannatrygginga. Skilyrði fyrir slíkri uppbót er að sjóðfélaginn sé ekki lengur fullfær um að gegna starfi sínu. Til sönnunar því ber viðkomandi að leggja fram umsögn yfirmanns síns um starfshæfnina og vottorð trúnaðarlæknis sjóðsins um heilsufar.

4.10

Á meðan sjóðfélagi gegnir áfram starfi eftir að hann hefur verið frá því leystur eða hann fær af öðrum ástæðum greidd óskert laun, á hann ekki jafnframt rétt til ellilífeyris.

5.gr. Örorkulífeyrir.

5.1

Sjóðfélagi sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins, á rétt á örorkulífeyrir ef hann verður fyrir orkutapi er tryggingayfirlæknir metur 10% eða meira. Örorkumat þetta skal aðallega miða við vanhæfni sjóðfélagana til að gegna starfi því er hann hefur gengt og aðild hans að sjóðnum er tengd. Þrátt fyrir örorku á enginn rétt á örorkulífeyri meðan hann heldur fullum launum fyrir starf það er hann gegndi eða fær jafnhá laun fyrir annað starf sem veitir lífeyrissjóðsréttindi, og aldrei skal örorkulífeyrir vera hærri en sem nemur þeim tekjumissi sem sjóðfélaginn hefur sannanlega orðið fyrir sökum örorkunnar.

5.2

Hámark örorkulífeyris miðast við áunninn lífeyrisrétt samkvæmt 4.5. til 4.7. Við það bætist einstaklingslífeyrir almannatrygginga. Ef rekja má örorkuna til starfs í þágu stöðu þeirrar, sem öryrkinn gegndi, skal þó reikna áunninn lífeyrisrétt eins og sjóðfélaginn hefði gegnt stöðu sinni til 65 ára aldurs. Áunninn lífeyrisréttur skal reiknast af launum þeim og persónuuppbót samkvæmt kjarasamningi, sem á hverjum tíma fylgja starfi því, sem sjóðfélaginn gegndi síðast (sjá þó 11.1.). Þó skal hann halda til 67 ára aldurs þeim hluta hans, sem miðaður er við lífeyri almannatrygginga.

5.3

Viðbótarörorkulífeyrir. Fyrir jafngildi hverra 12 mánaða iðgjaldagreiðslu vakta- og næturvinnufólks (sjá 2.6.) hækkar hámarksörorkulífeyrir, sem nemur 2% af viðmiðunarlaunum (sjá 2.4.).

5.4

Sé örorka sjóðfélagans á milli 10% og 50% er örorkulífeyrir hans sami hundraðshluti af hámarksörorkulífeyri og örorkan er metin. Sé örorkan metin 50% til 75% er örorkulífeyririnn 50% af hámarkinu að viðbættum 2% af því fyrir hvert prósent sem örorkan er metin umfram 50%. Sé örorkan metin 75% eða meiri greiðist hámarksörorkulífeyrir. Þegar öryrki, sem metinn er undir 75% nær 67 ára aldri, fær hann greiddan ellilífeyri samkvæmt ákvæðum 4. gr. Frá sama tíma fellur niður örorkulífeyrir hans.

5.5

Skylt er sjóðfélaga, sem sækir um örorkulífeyri úr sjóðnum eða nýtur hans, að láta stjórn sjóðsins í té allar þær upplýsingar um heilsufar sitt og atvinnutekjur, sem nauðsynlegar eru til að dæma um rétt hans til örorkulífeyris.

5.6

Stjórn sjóðsins ber að lækka eða fella niður örorkulífeyri þeirra sjóðfélaga, sem fá starfsorku sína aftur að nokkru eða öllu leyti. Sömuleiðis ber stjórn sjóðsins að hækka örorkulífeyrinn, ef örorkan vex til muna og án sjálfsskaparvíta frá því sem hún var metin við fyrri ákvarðanir, enda hafi öryrkinn á þeim tíma sem örorkan óx, ekki verið í þjónustu annarra en þeirra aðila, sem tryggja starfsfólk sitt í sjóðnum. Aldrei skal örorkulífeyrir vera hærra en sem nemur þeim tekjumissi, sem sjóðfélaginn hefur sannanlega orðið fyrir vegna örorkunnar.

6.gr. Makalífeyrir.

6.1

Andist sjóðfélagi, á eftirlifandi maki hans rétt til lífeyris úr sjóðnum, enda hafi hjónabandinu eigi verið slitið að lögum, áður en sjóðfélagi lést.

6.2

Upphæð makalífeyris er hundraðshluti af launum þeim og persónuuppbót samkvæmt kjarasamningi, sem á hverjum tíma fylgja starfi því, sem sjóðfélaginn gegndi síðast (sjá þó 11.1.).

6.3

Upphæð makalífeyris er helmingur af áunnum ellilífeyrisrétti hins látna sjóðfélaga. Hafi hinn látni sjóðfélagi verið í starfi er veitti honum aðild að sjóðnum við andlátið eða hafið töku lífeyris úr sjóðnum fyrir andlátið, hækkar makalífeyririnn um 20% af launum þeim er hann miðast við. Sama gildir hafi hinn látni sjóðfélagi greitt iðgjöld til sjóðsins sem nemur iðgjaldagreiðslum af fullu starfi í 15 ár eða meira, enda hafi hann ekki greitt iðgjöld til annars lífeyrissjóðs eftir að greiðslum til þessa sjóðs lauk.

6.4

Fyrir jafngildi hverra 12 mánaða iðgjaldagreiðslu vakta- og næturvinnufólks (sjá 2.6.) er greiddur viðbótarmakalífeyrir, sem nemur 1% af viðmiðunarlaunum (sjá 2.4.).

6.5

Sé makalífeyrir samkvæmt 6.2. og 6.4. lægri en tvöfaldur einstaklingslífeyrir almannatrygginga, skal greiða úr sjóðnum þeim makalífeyrisþegum, sem rétt eiga á maka- og ellilífeyri frá almannatryggingum, það sem á vantar að samanlagður lífeyrir þeirra nái tvöföldum einstaklingslífeyri almannatrygginga. Þó skal greiðsla sjóðsins aldrei fara fram úr hundraðshlutum þeim sem nefndir eru í 6.3.

6.6

Nú hefur sjóðfélagi gengið í hjónaband eftir að hann var orðinn 60 ára, eða á þeim tíma er hann naut lífeyris úr sjóðnum eða hann var lagstur banaleguna og úrskurðar þá stjórn sjóðsins hvort eftirlifandi maki hans skuli njóta lífeyris úr sjóðnum eða eigi.

6.7

Réttur til makalífeyris fellur niður ef hinn eftirlifandi maki gengur í hjónaband að nýju, en kemur aftur í gildi sé hinu síðara hjónabandi slitið án þess að það veiti rétt til makalífeyris úr sjóðnum eða úr einhverjum öðrum lífeyrissjóði. Sama regla gildir, ef hinn eftirlifandi maki býr samvistum með manni eða konu meðan samvistum er eigi slitið. Veiti síðara hjónabandið einnig rétt til lífeyris, má eftirlifandi maki velja hvort hann tekur lífeyri eftir fyrri eða síðari maka.

6.8

Þegar sjóðfélagi deyr, sem verið hefur tvígiftur og lætur eftir sig tvo maka á lífi, skiptist makalífeyririnn milli þeirra í beinu hlutfalli við þann tíma, sem hvor þeirra hefur verið giftur hinum látna sjóðfélaga á þeim tíma er hann ávann sér lífeyrisréttindi og/eða naut lífeyris úr sjóðnum. Ef annar hinna eftirlifandi maka giftist að nýju, fellur allur lífeyririnn til hins, en skiptist aftur sé því hjónbandi slitið, enda veiti síðara hjónabandið ekki rétt til lífeyris úr sjóðnum eða öðrum hliðstæðum sjóði. Hliðstæð regla gildir, séu rétthafar makalífeyris fleiri en tveir.

6.9

Andist ógiftur sjóðfélagi og hafi ógiftur aðili sannanlega annast heimili hans um árabil fyrir andlátið, þó eigi skemur en fimm ár, er stjórn sjóðsins heimilt að greiða hlutaðeigandi makalífeyri.

6.10

Andist ógiftur sjóðfélagi í sambúð, er sjóðstjórn heimilt að greiða sambúðaraðila makalífeyri, eigi hann barn innan 18 ára aldurs með hinum látna.

6.11

Sjóðstjórn er heimilt að greiða sambúðaraðila ógifts sjóðfélaga makalífeyri í 24 mánuði þó ekki sé fullnægt skilyrðum í 6.9. og 6.10. eða ef sambúðaraðili er 50% öryrki eða meira.

7.gr. Frestun á töku lífeyris.

7.1

Nú frestar sjóðfélagi að taka ellilífeyri og tekur jafnframt við öðru starfi hjá stofnun er veitir aðgang að sjóðnum, lægra launuðu en því er hann gegndi áður og skal þá reikna lífeyri eftir því starfinu, sem var hærra launað.

7.2

Sama regla gildir, þegar sjóðfélagi verður af heilsufarsástæðum að láta af stöðu sinni, en tekur við öðru, léttara og lægra launuðu starfi, er veitir aðgang að sjóðnum. Þegar svo stendur á, sem í þessari mgr. ræðir um, er sjóðfélaga heimilt að kaupa sér réttindi í sjóðnum fyrir þann tíma, sem úr hefur fallið. Stjórn sjóðsins getur krafist vottorðs tryggingayfirlæknis til sönnunar því, að sjóðfélaginn verði að láta af stöðu sinni vegna heilsubrests.

8.gr. Barnalífeyrir.

8.1

Börn eða kjörbörn, sem sjóðfélagi lætur eftir sig, er hann andast og yngri eru en 18 ára, eiga rétt á barnalífeyri, enda hafi hinn látni séð um framfærslu þeirra að nokkru eða öllu leyti.

8.2

Ef barnið á foreldri eða kjörforeldri á lífi, er sér um framfærslu þess, er samanlagður lífeyrir þess frá almannatryggingum og úr þessum sjóði 50% hærri en barnalífeyrir almannatrygginga. Að öðrum kosti er hinn samanlagði lífeyrir tvöfaldur barnalífeyrir almannatrygginga (sjá þó 11.2).

8.3

Sama rétt öðlast börn og kjörbörn þeirra sjóðfélaga, er njóta elli- og örorkulífeyris úr sjóðnum, þó þannig, að barnalífeyrir til barna eða kjörbarna örorkulífeyrisþega skal vera jafnmargir hundraðshlutar af fullum barnalífeyri og örorkulífeyrir hans er margir hundraðshlutar af hámarksörorkulífeyri.

8.4

Fósturbörn, er sjóðfélagi hefur framfært að mestu eða öllu leyti, njóta sama réttar og börnum og kjörbörnum er veittur hér að framan.

8.5

Barnalífeyrir greiðist framfæranda barns.

9.gr. Breyting á lífeyri eftir að lífeyristaka hefst.

9.1

Ellilífeyrir, örorkulífeyrir og makalífeyrir skal breytast í samræmi við meðalbreytingar sem verða á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu sbr. 4.2. grein frá því sem hann var í ágúst 2003 eða verður ákveðinn skv. 4.2. eða 4.3. grein þegar lífeyristaka hefst. Hagstofa Íslands reiknar breytingarnar skv. reglum, sem stjórn sjóðsins hefur samþykkt. Skulu þær reiknaðar mánaðarlega miðað við laun tveim mánuðum áður og birtar sjóðnum. Breytingarnar skulu reiknaðar sem vísitala sem sett skal (100 fyrir desember 1996).

9.2

Breytingar á lífeyri eftir að taka hans hefst skv. 9.1. grein tekur til þeirra sem hér greinir.

a) Lífeyrisþega hjá sjóðnum í ágúst 2003, sem kjósa að um lífeyri þeirra fari eftir 9.1. grein, sbr. ákvæði 9.4. greinar.

b) Sjóðfélaga, sem hefja töku lífeyris úr sjóðnum eftir 1. september 2003 í beinu framhaldi af starfi sem greitt var af til sjóðsins og ekki kjósa að um lífeyri þeirra fari eftir 9.3. grein, sbr. ákvæði 9.5. greinar.

c) Sjóðfélaga, sem hefja töku lífeyris úr sjóðnum eftir 1. september 2003 í beinu framhaldi af starfi sem greitt var af til sjóðsins og eiga rétt til viðmiðunar við laun fyrir hærra launað starf en þeir gegndu næst fyrir töku lífeyris, sbr. greinar 4.3.a, 4.3.b. og 4.3.c. og ekki kjósa að um lífeyri þeirra fari eftir 9.3. grein, sbr. ákvæði 9.4. greinar.

d) Sjóðfélaga, sem hefja ekki töku lífeyris í beinu framhaldi af starfi sem veitti þeim aðild að sjóðnum og taka lífeyri, sem ákveðinn er skv. ákvæðum 4.3. greinar.

e) Sjóðfélaga, sem áttu aðild að sjóðnum vegna niðurlagningar á stöðu skv. grein 11.3. og taka lífeyri, sem ákveðinn er skv. grein 11.3.

9.3

Þrátt fyrir ákvæði 9.1. greinar geta þeir, sem fengu lífeyri úr sjóðnum í ágúst 2003 eða hefja töku lífeyris úr sjóðnum í beinu framhaldi af starfi sem greitt er af til sjóðsins til þess tíma, ákveðið að í stað breytinga skv. 9.1. grein fylgi lífeyririnn breytingum á þeim launum, sem á hverjum tíma eru greidd fyrir það starf sem þeir gegndu síðast eða upphaflegur lífeyrir er miðaður við með öðrum hætti skv. 4.3. grein. Val lífeyrisþega skv. þessu ákvæði tekur einnig til makalífeyrisréttar og er bindandi fyrir hann með sama hætti.

9.4

Sjóðfélagar, sem fengu úr sjóðnum í júní 2003, skulu ákveða fyrir 1. janúar 2004 hvort um breytingar á lífeyri þeirra fari eftir ákvæðum 9.1. greinar eða 9.3. greinar. Kjósi sjóðfélagi að farið verði eftir 9.1. grein skal upphæð lífeyris frá og með þriðja mánuði á eftir ráðast af ákvæðum þeirrar greinar og er það val bindandi upp frá því.

9.5

Sjóðfélagi, sem hefur töku lífeyris úr sjóðnum í beinu framhaldi af starfi sem greitt var af til sjóðsins þar til taka lífeyris hófst, skal eigi síðar en þremur mánuðum eftir að taka lífeyris hefst tilkynna sjóðnum hvort um lífeyri hans skuli fara eftir 9.1. grein eða 9.3. grein. Berist slík tilkynning ekki skal farið eftir 9.1. grein. Velji sjóðfélagi 9.1. grein með slíkri tilkynningu eða ef engin tilkynning berst skal upphæð lífeyris frá og með upphafi á töku lífeyris ráðast af ákvæðum þeirrar greinar og er það val bindandi upp frá því.

9.6

Sjóðfélagi, sem skv. 9.4. eða 9.5. grein, kýs að um lífeyri hans fari eftir 9.3. grein, skal eiga þess kost að velja síðar að farið verði að ákvæðum 9.1. greinar og er það val bindandi upp frá því. Skal breytingin þá koma til framkvæmda mánuði eftir að hennar var óskað með skriflegum hætti og lífeyrissjóðurinn hefur staðfest móttöku umsóknar um breytingu. Breytingar á lífeyri skv. 9.1. grein miðast við lífeyri sjóðfélaga í mánuðinum á undan breytingunni eins og hann var ákveðinn skv. 9.3. grein.

9.7

Sé starf, sem verið hefur til viðmiðunar fyrir breytingar á lífeyri, sbr. 9.3. grein, lagt niður skulu breytingar á lífeyri þeirra, sem haft hafa viðmið við það, upp frá því fara eftir 9.1. grein. Stjórnin getur þó ákveðið önnur viðmiðunarlaun sé eftir því óskað.

10. gr. Starfstími sjóðfélaga.

10.1

Starfstími sjóðfélaga telst sá tími, sem hann hefur greitt iðgjöld til sjóðsins. Starfstíminn þarf ekki að vera samfelldur.

11. gr. Úrganga úr sjóðnum.

11.1

Nú lætur sjóðfélagi af öðrum ástæðum en elli eða örorku af stöðu þeirri er veitti honum aðgang að sjóðnum og fellur þá niður réttur hans og skylda til að greiða framvegis iðgjöld til sjóðsins. Ellilífeyrir hans, örorkulífeyrir og lífeyrir eftirlátins maka, sbr. 4., 5. og 6. gr. miðast þá við starfstíma hans og laun þau er hann hafði er hann lét af stöðu þeirri er veitti aðgang að sjóðnum, en tekur sömu breytingum og lífeyrir annarra eftir að taka lífeyris hefst. Hafi hann verið sjóðfélagi í 3 ár eða lengur vegna starfs í þjónustu launagreiðanda sem aðild á að sjóðnum, miðast elli-, örorku- og makalífeyrir þó við launin eins og þau eru þegar lífeyrisgreiðslur byrja.

11.2

Hafi hann gegnt stöðunni skemur en 32 ár, skal lífeyrir barna hans ákveðinn þannig, að full upphæð samkvæmt 8. gr. skal margfölduð með hlutfallinu á milli þess ellilífeyris sem hann hefur öðlast rétt til og þess ellilífeyris sem hann hefði öðlast rétt til ef hann hefði gegnt starfinu í 32 ár.

11.3

Sé staða eða starf sjóðfélaga lagt niður, á hann rétt á að vera áfram í sjóðnum og greiða iðgjöld, sem miðuð séu við laun í þeim launaflokki er staða hans var í, er hún var lögð niður. Nýtur hann þá sömu réttinda úr sjóðnum sem hann hefði gegnt starfi sínu áfram.

12. gr. Flutningur réttinda og endurgreiðsla.

12.1

Stjórn sjóðsins er heimilt að semja um að taka við réttindum, sem sjóðfélagar í öðrum lífeyrissjóðum eiga, eða flytja réttindi sjóðfélaga þessa sjóðs til annars lífeyrissjóðs enda sé slíkt heimilt samkvæmt lögum. Við slíkan réttindaflutning skal þess gætt að sjóðurinn beri ekki skaða af honum. Stjórn sjóðsins skal semja við aðra lífeyrissjóði um hvernig skuli fara með réttindi þeirra sem flytjast á milli sjóða og setja nánari reglur þar um.

12.2

Heimilt er skv. umsókn að endurgreiða iðgjöld erlendra ríkisborgara sem hverfa úr sjóðnum vegna brottflutnings úr landi, enda sé slík endurgreiðsla ekki óheimil samkvæmt milliríkjasamningum, sem Ísland er aðili að. Heimilt er að draga frá endurgreiddu iðgjaldi að viðbættum vöxtum kostnað vegna tryggingaverndar, sem sjóðfélaginn hefur notið, og kostnað vegna umsýslu samkvæmt mati tryggingafræðings. Óheimilt er að endurgreiða iðgjöld ríkisborgara annarra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins (EES) skv. gildandi milliríkjasamningum.

12.3

Í samþykktum er heimilt að kveða á um útborgun lífeyris í einu lagi ef um lágar upphæðir er að ræða.

13. gr. Greiðsla lífeyris.

13.1

Lífeyrir úr sjóðnum greiðist mánaðarlega fyrirfram.

13.2

Lífeyrir greiðist lífeyrisþegum (sbr. þó 8.5) eða þeim, sem hann gefur til þess skriflegt umboð.

13.3

Mánaðarlega greiddur lífeyrir skal breytast í samræmi við meðalbreytingar á launum skv. 9.1. grein frá og með næsta mánuði eftir að útreikningur á þeim liggur fyrir.

13.4

Umsókn um lífeyri skal vera skrifleg og greiðist lífeyrir frá næstu mánaðarmótum eftir að umsókn berst. Þó skal heimilt að greiða lífeyri frá því að réttur til greiðslu stofnast, þó eigi meira en fjögur ár aftur í tímann. Launagreiðandi sem stendur skil á iðgjöldum til sjóðsins skv. 1. grein skal tilkynna sjóðnum þegar sjóðfélagi lætur af starfi hjá honum, sem veitir aðild að sjóðnum eða hann hættir greiðslu iðgjalda til sjóðsins af öðrum ástæðum.

13.5

Nú nær mánaðarleg greiðsla lífeyris ekki kr. 3.077 á mánuði og er þá heimilt að inna greiðsluna af hendi í einu lagi í samræmi við tillögur tryggingastærðfræðings. Fjárhæð þessi tekur breytingum til samræmis við breytingar sem verða á vísitölu neysluverðs miðað við 410,7 fyrir mars 2013.

14. gr. Lífeyrisgreiðslur vegna starfstíma fyrir stofnun sjóðsins.

14.1

Sjóðfélagar, sem hafa fyrir stofnun sjóðsins verið í þjónustu Akraneskaupstaðar, stofnana hans eða sjálfseignarstofnana, er fengið hafa aðgang að sjóðnum og þá fullnægt ráðningarskilyrðum í grein 1.3, skulu fá lífeyrisrétt fyrir þann starfstíma allt að 10 ár, þó ekki fyrir fleiri ár en svo að heildarstarfstími sem lífeyrisréttur er miðaður við verði mest 30 ár.

14.2

Lífeyrisréttur skal þó vera sem hér segir:

  • Ellilífeyrir er fundinn þannig, að fyrst er fundið hve marga hundraðshluta af launum hvert ár sem þeir hafi greitt iðgjald til sjóðsins gefur í ellilífeyri skv. 4. gr.
  • Hvert starfsár fyrir stofnun sjóðsins gefur 60% af ársmeðaltalinu eftir að iðgjaldagreiðslan hófst.
  • Örorkulífeyrir ákvarðast út frá áunnum ellilífeyrisrétti með sama hætti og hjá öðrum sjóðfélögum.
  • Makalífeyrir ákvarðast þannig, að hvert starfsár fyrir stofnun sjóðsins gefur 0,6% af launum í makalífeyri. Lífeyrir, sem greiddur kann að verða vegna starfstíma fyrir stofnun sjóðsins, skal endurgreiddur úr bæjarsjóði eða af þeirri bæjarstofnun eða sjálfseignarstofnun, sem í hlut á.

 

15. gr. Ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins.

15.1

Akraneskaupstaður ábyrgist skuldbindingar Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar.

16. gr. Gildistaka o.fl.

16.1

Lífeyrisþegar, sem áttu betri rétt samkvæmt reglugerð sjóðsins frá 1. janúar 1978, skulu halda þeim rétti. Reglugerðin frá 1978 skal aðgengileg sjóðfélögum á skrifstofu sjóðsins.

16.2

Samkvæmt samþykktum þessum, skulu sjóðfélagar njóta þeirra lífeyrisréttinda, sem samið var um 23. september 1980 í kjarasamningi St. Rv. og Akraneskaupstaðar í kaflanum: “Samkomulag um réttindamál” (sbr. viðauka).