Fara í efni

Eftirlaunasjóður starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar

Eftirlaunasjóður starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar

Eftirlaunasjóður starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar var stofnaður árið 1956 af Hafnarfjarðarkaupstað og stofnunum hans. Sparisjóður Hafnarfjarðar gerðist aðili að eftirlaunasjóðnum árið 1973. Sjóðnum var lokað fyrir nýjum sjóðfélögum 1.júlí 1998 í samræmi við lög nr. 129 frá 1997.

Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur annast rekstur sjóðsins frá 1. apríl 2012  í samræmi við samkomulag þar um. Sumarið 2013 sameinaðist sjóðurinn fjórum öðrum sveitarfélagssjóðum inn í B deild Brúar lífeyrissjóðs og er nú vísað til réttindasafns sjóðsins í daglegu tali.Tilgangurinn með sameiningunni var að einfalda utanumhald og lækka kostnað. Með sameiningunni var áhersla lögð á að réttindi sjóðfélaga héldust óbreytt sem og réttindaávinnsla til framtíðar.

Bakábyrgð sveitarfélagsins hélst óbreytt og hún sérgreind fyrir sjóðinn. 

Samþykktir Brúar lífeyrissjóðs 

Réttindaákvæði úr samþykktum Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar

1. gr Iðgjöld

1.1

Þeir einir hafa rétt til að greiða áfram til sjóðsins sem voru sjóðfélagar í júní 1998, hafa átt aðild að sjóðnum óslitið frá þeim tíma, eru í eigi minna en hálfu starfi og taka kjör samkvæmt kjarasamningum byggðum á lögum opinberra starfsmanna nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Falli iðgjaldagreiðslur til sjóðsins niður t.d. vegna þess að viðkomandi sjóðfélagi hættir í starfi eða skiptir um starf, hefur sjóðfélagi áfram rétt til aðildar, svo fremi hann hefji aftur starf sem veitir honum rétt til aðildar að sjóðnum innan tólf mánaða frá því að iðgjalda-greiðslur féllu niður. Ef iðgjalda¬greiðslur til sjóðsins falla hins vegar niður í tólf mánuði eða lengur, eða réttindaávinnsla án iðgjaldagreiðslu fellur niður í jafnlangan tíma, á viðkomandi einstaklingur ekki framar rétt á aðild að sjóðnum.

1.2

Aðild að sjóðnum fellur niður ef sjóðfélagi fær útborguð réttindi sín í einu lagi eða þau flytjast samkvæmt samskiptareglum lífeyris¬sjóða í annan lífeyrissjóð.

1.3

Iðgjald er 12% af föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót. Sjóðfélagar greiða 4% af föstum launum sínum fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót í iðgjald til sjóðsins. Launagreiðanda ber að halda iðgjöldum eftir af launum sjóðfélaga og greiða þau sjóðnum innan 10 daga frá útborgun launanna.

1.4

Sjóðfélagar bera eigi ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins nema með iðgjöldum sínum.

1.5

Launagreiðendur greiða 8% af föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót, er sjóðfélagi tekur hjá þeim, í iðgjöld til sjóðsins og skal greiða þau sjóðnum samtímis iðgjöldum sjóðfélaga.

1.6

Þegar sjóðfélagi hefur greitt iðgjöld til sjóðsins í 32 ár falla iðgjaldagreiðslur hans niður. Þó er sjóðfélaga, er gegnt hefur um lengri eða skemmri tíma hlutastarfi, heimilt að greiða áfram iðgjald til sjóðsins af föstum launum sínum fyrir dagvinnu allt að því marki að jafngildi iðgjaldagreiðslu af launum fyrir fullt starf í 32 ár. Launagreiðanda skal þá skylt að greiða iðgjald að sínum hluta, sbr. 3. mgr. þessarar greinar. Eftir að iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga falla niður samkvæmt þessari málsgrein eða 5. mgr. 2. gr. greiðir launagreiðandi hans 12% af launum þeim sem tilgreind eru í 3. mgr. þessarar greinar í iðgjald til sjóðsins.

1.7

Launþegi, sem yngri er en 16 ára, greiðir eigi iðgjöld til sjóðsins, enda öðlast hann eigi réttindi sjóðfélaga fyrr en hann hefur náð nefndum aldri.

1.8

Taki sjóðfélagi ekki laun samkvæmt samningum eða öðrum launaákvörðunum sem sveitarfélög gera á grundvelli laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna skal stjórn sjóðsins ákveða þau viðmiðunarlaun sem iðgjöld eru greidd af, og skulu þau ákveðin með hliðsjón af launaákvörðunum sem gilda um starfsmenn sveitafélaga og fyrirtækja.

2. gr. Eftirlaun

2.1

Hver sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjald til sjóðsins, á rétt á lífeyri frá næstu mánaðamótum eftir að hann verður 65 ára, enda hafi hann þá látið af þeim störfum sem veitt hafa honum aðild að sjóðnum.

2.2

Upphæð ellilífeyris er hundraðshluti af þeim föstu launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót samkvæmt kjarasamningum sem við starfslok fylgja stöðu þeirri fyrir fullt starf er sjóðfélagi gegndi síðast. Hundraðshluti þessi fer eftir iðgjaldagreiðslutíma og starfshlutfalli sjóðfélagans og er 2% fyrir hvert ár í fullu starfi sem iðgjöld hafa verið greidd fyrir, en hlutfallslega lægri fyrir minna starfshlutfall. Fyrir hvert fullt ársstarf eftir að iðgjaldagreiðslu lýkur og þar til sjóðfélaginn öðlast rétt til að láta af störfum og fá ellilífeyri bætist við 1% af föstum árslaunum fyrir fullt starf en 2% fyrir hvert fullt ársstarf eftir að iðgjaldagreiðslu er lokið og hann hefur öðlast rétt til að fá lífeyri.

2.3

Eftir að taka lífeyris hefst skulu breytingar á lífeyrisgreiðslum ákveðnar til samræmis við meðalbreytingar sem verða á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu, sbr. 2. mgr., og skal Hagstofa Íslands reikna þær mánaðarlega.

2.4

Sjóðfélagar, sem hefja töku lífeyris í beinu framhaldi af starfi og þeir sem fá lífeyrisgreiðslur úr sjóðnum við gildistöku þessara samþykkta, geta, þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 2. gr. viðaukans, valið hvort lífeyrisgreiðslur til þeirra breytist til samræmis við breytingar sem verða á launum er á hverjum tíma eru greidd fyrir það starf sem þeir gegndu síðast, eða eftir atvikum við breytingar á launum fyrir hærra launað starf samkvæmt ákvæðum 7. mgr. 2. gr. og 1. eða 4. mgr. 6. gr. viðaukans, eða hvort þær skuli breytast samkvæmt ákvæðum 3. mgr. 2. gr. viðaukans. Skal stjórnin setja nánari ákvæði um með hvaða hætti vali sjóðfélaga samkvæmt þessu verði háttað og innan hvaða tímamarka þeir skuli tilkynna sjóðnum um þessa ákvörðun.

2.5

Sé starf sem verið hefur til viðmiðunar fyrir breytingar á lífeyri samkvæmt 2.4. lagt niður skulu breytingar á lífeyri þeirra sem haft hafa viðmiðum við það, upp frá því fara eftir.

2.6

Þegar sjóðfélagi hefur náð því að samanlagður lífaldur og iðgjaldagreiðslutími sé 95 ár, hann er orðinn 60 ára og lætur af störfum á hann rétt á lífeyri úr sjóðnum. Sjóðfélagi, sem notfærir sér þessa reglu, skal greiða iðgjald til sjóðsins þar til 95 ára markinu er náð. Lífeyrisréttur hans skal vera 2% fyrir hvert ár í fullu starfi sem iðgjöld hafa verið greidd fyrir, en hlutfallslega lægri fyrir skemmra starfstímabil og minna starfshlutfall, en þó ekki meira en 64% að náðu 95 ára markinu. Iðgjaldagreiðsluskylda fellur niður þegar 95 ára markinu er náð. Sjóðfélagi, sem nær 95 ára markinu eftir að hann nær 64 ára aldri, getur ekki nýtt sér heimild samkvæmt þessari málsgrein.

2.7

Lífeyrisréttur hjá þeim sem njóta útreiknings skv. 5. mgr. skal aukast um 2% fyrir hvert ár í fullu starfi frá því að iðgjaldagreiðsluskyldu lýkur og þar til taka lífeyris hefst, en um hlutfallslega lægri hundraðshluta fyrir skemmra starfstímabil og minna starfshlutfall.

2.8

Hafi sjóðfélagi gegnt hærra launuðu starfi eða störfum í að minnsta kosti tíu ár fyrr á sjóðfélagatíma sínum í Eftirlaunasjóð starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar skal miða lífeyrinn við hæst launaða starfið, enda hafi hann gegnt því í að minnsta kosti tíu ár, ella skal miðað við það hærra launaða starf sem hann að viðbættum enn hærra launuðum störfum gegndi í að minnsta kosti tíu ár.

2.9

Heimilt er stjórn sjóðsins að greiða ellilífeyrisþegum á aldrinum 65 til 67 ára uppbót á lífeyri allt að einstaklingslífeyri almannatrygginga. Það er skilyrði fyrir slíkri uppbót, að sjóðfélaginn sé ekki lengur fullfær um að gegna starfi sínu. Til sönnunar því ber viðkomandi að leggja fram umsögn yfirmanns síns um starfshæfnina og vottorð trúnaðarlæknis um heilsufar.

2.10

Sjóðfélagi, sem gegnir starfi sem uppfyllir aðildarskilyrði að sjóðnum skv. 4. gr., á ekki auk launa jafnframt rétt til lífeyris meðan hann gegnir því starfi. Sama á við um þá sem fá greidd óskert laun, sem starfinu fylgja, eftir að þeir láta af störfum.

2.11

Sjóðfélagar, sem rétt eiga á að greiða iðgjald til lífeyrissjóðsins skv. gr. 1.1 en kjósa fremur að greiða til A-deildar LSS, eiga ekki rétt til töku ellilífeyris úr sjóðnum á meðan þeir gegna störfum sem uppfylla aðildarskilyrði 1. gr.

3. gr. Um sérstök lífeyrisréttindi fyrir vaktavinnu og næturvinnu.

3.1

Vaktavinnufólk, það er þeir sjóðfélagar sem hafa vinnutíma sem hreyfist með reglubundnum hætti, skal fá rétt til sérstaks viðbótarlífeyris (ellilífeyris, örorkulífeyris eða makalífeyris) úr Eftirlaunasjóð starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar, enda sé þeim skylt að greiða iðgjald af vaktaálagsgreiðslum til sjóðsins.

3.2

Sama gildir um næturverði og það starfsfólk sem hefur vinnuskyldu eingöngu á nóttunni, það er á tímabilinu frá kl. 22.00-09.00, og skal þá álagsgreiðslan verða grundvöllur iðgjalda og lífeyrisréttinda.

3.3

Sjóðfélagi greiði 4% af vaktaálaginu í iðgjöld og launagreiðandi 8%.

3.4

Stjórn lífeyrissjóðsins ákveður á hverjum tíma hver skuli vera viðmiðunarmánaðarlaun þau sem lífeyririnn ákvarðast af og iðgjaldið er metið eftir.

3.5

Breyti stjórn lífeyrissjóðsins viðmiðunarmánaðarlaununum skal hún jafnframt ákveða hvort og þá hvernig skuli umreikna áunninn lífeyrisrétt fyrri ára.

3.6

Iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga af vaktaálagi skulu ár hvert metnar þannig til lífeyrisréttinda að reiknað sé hvað iðgjaldagreiðslur ársins samsvara margra mánaða iðgjaldagreiðslu af viðmiðunarlaunum.

3.7

Fyrir jafngildi hverrar tólf mánaða iðgjaldagreiðslu ávinnst réttur til ellilífeyris og örorkulífeyris sem nemur 2% af viðmiðunarlaunum og réttur til makalífeyris sem nemur 1% af viðmiðunarlaunum.

4. gr Örorkulífeyrir.

4.1

Hver sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins, á rétt á örorkulífeyri ef hann verður fyrir orkutapi er trúnaðarlæknir metur 10% eða meira. Örorkumat þetta skal aðallega miðað við vanhæfni sjóðfélaga til að gegna starfi því er hann hefur gegnt og aðild hans að sjóðnum er tengd. Þrátt fyrir örorku á enginn rétt á örorkulífeyri meðan hann heldur fullum föstum launum fyrir starf það er hann gegndi, eða fær jafnhá laun fyrir annað starf sem veitir lífeyrissjóðsréttindi, og aldrei skal örorkulífeyrir vera hærri en sem nemur þeim tekjumissi sem sjóðfélaginn hefur sannanlega orðið fyrir sökum örorkunnar.

4.2

Hámark örorkulífeyris miðast við áunninn lífeyrisrétt skv. 2. gr. Hafi sjóðfélaginn greitt iðgjöld til sjóðsins undanfarin þrjú almanaksár og a.m.k. í sex mánuði á undanfarandi tólf mánuðum miðast hámark örorkulífeyris þó við áunninn lífeyrisrétt skv. 2. gr., að viðbættum einstaklingslífeyri almannatrygginga. Ef rekja má aðalorsök örorkunnar til starfs í þágu stöðu þeirrar sem öryrkinn gegndi skal þó reikna áunninn lífeyrisrétt eins og sjóðfélaginn hefði gegnt stöðu sinni til 65 ára aldurs, og skulu áunnin lífeyrisréttindi þá reiknast af launum í því starfi sem sjóðfélaginn gegndi síðast eins og þau eru á hverjum tíma.

4.3

Sé örorka sjóðfélagans á milli 10% og 50% er örorkulífeyrir hans sami hundraðshluti af hámarksörorkulífeyri eins og örorkan er metin. Sé örorkan metin 50% til 75% er örorkulífeyririnn 50% af hámarkinu að viðbættum 2% af því fyrir hvert 1% sem örorkan er metin umfram 50%. Sé örorkan metin 75% eða meiri greiðist hámarksörorkulífeyrir að frádregnum örorkulífeyri almannatrygginga. Þegar öryrki, sem metinn er undir 75%, nær 65 ára aldri fær hann greiddan ellilífeyri samkvæmt ákvæðum 2. gr. Frá sama tíma fellur niður örorkulífeyrir hans. Þó skal hann halda til 67 ára aldurs þeim hluta hans sem miðaður er við lífeyri almannatrygginga.

4.4

Skylt er öryrkja, sem sækir um örorkulífeyri úr sjóðnum eða nýtur hans, að láta stjórn sjóðsins í té allar þær upplýsingar um heilsufar sitt sem nauðsynlegar eru til að dæma um rétt hans til örorkulífeyris.

4.5

Stjórn sjóðsins er heimilt að lækka eða fella niður örorkulífeyri þeirra öryrkja sem fá starfsorku sína aftur að nokkru eða öllu leyti.

4.6

Sömuleiðis ber stjórn sjóðsins að hækka örorkulífeyrinn ef örorkan vex til muna og án sjálfskaparvíta frá því sem hún var metin við fyrri ákvarðanir, enda hafi öryrkinn á þeim tíma, sem örorkan óx, ekki verið í þjónustu annarra en þeirra aðila sem tryggja starfsfólk sitt í sjóðnum.

5. gr Makalífeyrir.

5.1

Nú andast sjóðfélagi og lætur hann eftir sig maka á lífi, og á þá hinn eftirlifandi maki rétt til lífeyris úr sjóðnum.

5.2

Upphæð makalífeyris er helmingur af áunnum ellilífeyrisrétti hins látna sjóðfélaga. Makalífeyrir hækkar síðan um 20% af launum þeim er hann miðast við ef hinn látni sjóðfélagi hefur verið í fullu starfi við starfslok, en hækkunin verður hlutfallslega lægri ef sjóðfélaginn hefur verið í lægra starfshlutfalli við starfslok. Viðbótarlífeyrir þessi greiðist þó einungis ef hinn látni sjóðfélagi hefur uppfyllt eitt af þremur eftirgreindum skilyrðum:

  1. Hann hafi verið í starfi er veitti honum aðild að sjóðnum við andlátið.
  2. Hann hafi hafið töku lífeyris fyrir andlátið og upphaf lífeyristöku hans hafi verið í beinu framhaldi af starfi sem veitti honum aðild að sjóðnum.
  3. Hann hafi greitt iðgjöld til sjóðsins sem nema iðgjaldagreiðslum af fullu starfi í 15 ár eða meira og ekki greitt iðgjald til annars sjóðs eftir að greiðslum til þessa sjóðs lauk.

5.3

Nú hefur sjóðfélagi gengið í hjónaband eftir að hann var orðinn 60 ára, eða á þeim tíma er hann naut lífeyris úr sjóðnum eða hann var lagstur banaleguna, og úrskurðar þá stjórn sjóðsins hvort eftirlifandi maki hans skuli njóta lífeyris úr sjóðnum eða eigi.

5.4

Réttur til lífeyris samkvæmt þessari grein fellur niður ef hinn eftirlifandi maki gengur í hjónaband að nýju, en kemur aftur í gildi sé hinu síðara hjónabandi slitið, enda veiti hið síðara hjónaband eigi rétt til lífeyris úr sjóðnum. Veiti síðara hjónabandið einnig rétt til lífeyris má eftirlifandi maki velja um hvort hann tekur lífeyrinn eftir fyrri eða síðari makann.

5.5

Hafi hjúskap lokið vegna skilnaðar skal útreikningur makalífeyris miðast við þann tíma er hinn látni sjóðfélagi hafði átt aðild að sjóðnum þegar hjúskap var slitið. Viðbótarlífeyrir skv. 2. mgr. greiðist ekki í því tilviki.

5.6

Þegar sjóðfélagi, sem verið hefur tvígiftur, deyr og lætur eftir sig maka og fyrrverandi maka á lífi skiptist makalífeyririnn á milli þeirra þannig að réttur fyrriverandi maka ákvarðast samkvæmt reglu 5. mgr. en réttur maka telst frá þeim degi er hinum fyrra hjúskap var slitið. Hliðstæð regla gildir séu rétthafar makalífeyris fleiri en tveir.

5.7

Heimilt er að skipta rétti til makalífeyris milli fyrrverandi maka og síðari sambúðaraðila skv. ákvæðum 6. mgr.

5.8

Hafi sjóðfélagi verið utan hjónabands við andlátið, en einstæð móðir hans, ógift systir hans eða annar ógiftur aðili hefur sannanlega annast heimili hans um árabil fyrir andlát hans, þó eigi skemur en fimm ár, og er þá stjórn sjóðsins heimilt að greiða hlutaðeigandi makalífeyri, svo sem um ekkju eða ekkil væri að ræða. Á sama hátt er sjóðsstjórn heimilt að greiða sambúðarmanni og sambúðarkonu lífeyri ef sjóðfélagi lætur eftir sig barn innan 18 ára aldurs sem hann hefur átt með hinu eftirlifandi. Einnig er sjóðsstjórn heimilt að greiða sambúðarkonu eða sambúðarmanni lífeyri í 24 mánuði þótt ekki sé fullnægt skilyrðum 1. málsl. um sambúðartíma, eða ef sambúðaraðili er 50% öryrki eða meira.

6. gr Frestun á töku eftirlauna.

6.1

Nú frestar sjóðfélagi að taka ellilífeyri og tekur jafnframt við öðru starfi hjá stofnun er veitir aðgang að sjóðnum, lægra launuðu en því er hann gegndi áður, og skal þá reikna lífeyri eftir því starfinu sem hærra var launað.

6.2

Sama regla gildir þegar sjóðfélagi verður af heilsufarsástæðum að láta af stöðu sinni, en tekur við öðru léttara og lægra launuðu starfi er veitir aðgang að sjóðnum. Þegar svo stendur á sem í þessari málsgrein ræðir um er sjóðfélaga heimilt að kaupa sér réttindi í sjóðnum fyrir þann tíma sem úr hefur fallið. Stjórn sjóðsins getur krafist vottorðs trúnaðarlæknis til sönnunar því að sjóðfélaginn verði að láta af stöðu sinni vegna heilsubrests.

6.3

Þegar lífeyrisgreiðslur skulu miðast við hærra launað starf en lokastarf skv. 1. eða 2. mgr. eða skv. 7. mgr. 2. gr. skal við ákvörðun um lífeyri miða við meðalhækkanir á launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu skv. 3. mgr. 2. gr. frá þeim tíma er starfsmaður lætur af sínu hærra launaða starfi og þar til taka lífeyris hefst.

6.4

Hafi starfsmaður látið af hinu hærra launaða starfi fyrir árslok 1997 skal þó miða breytingar á lífeyri við breytingar á þeim launum er starfinu fylgdu fram til ársloka 1997. Eftir það skal farið eftir reglu 3. mgr.

7. gr Barnalífeyrir.

7.1

Börn eða kjörbörn, sem sjóðfélagi lætur eftir sig er hann andast, og yngri eru en 18 ára, skulu fá árlegan lífeyri úr sjóðnum þar til þau eru fullra 18 ára að aldri, enda hafi hinn látni séð um framfærslu þeirra að nokkru eða öllu leyti. Sama gildir um börn eða kjörbörn er sá maður lætur eftir sig er naut elli- eða örorkulífeyris úr sjóðnum er hann andaðist.

7.2

Ef barnið á foreldri eða kjörforeldri á lífi, er sér um framfærslu þess, er samanlagður lífeyrir þess frá almannatryggingum og úr þessum sjóði 50% hærri en barnalífeyrir almannatrygginga. Að öðrum kosti er lífeyririnn tvöfaldur barnalífeyrir almannatrygginga.

7.3

Sama rétt öðlast börn og kjörbörn þeirra sjóðfélaga er njóta elli- eða örorkulífeyris úr sjóðnum, þó svo að barnalífeyrir úr þessum sjóði til barna eða kjörbarna örorkulífeyrisþega skal vera jafnmargir hundraðshlutar af fullum barnalífeyri eins og örorkulífeyrir hans er margir hundraðshlutar af hámarksörorkulífeyri.

7.4

Fósturbörn, er sjóðfélagi hefur framfært að mestu eða öllu leyti, njóta sama réttar og börnum og kjörbörnum er veittur hér að framan.

8. gr Úrganga úr sjóðnum.

8.1

Nú lætur sjóðfélagi af öðrum ástæðum en elli eða örorku af stöðu þeirri er veitti honum aðgang að sjóðnum og fellur þá niður réttur hans og skylda til að greiða framvegis iðgjöld til sjóðsins. Ellilífeyrir hans, örorkulífeyrir og lífeyrir eftirlátins maka miðast þá við starfstíma hans og laun þau er hann hafði er hann lét af stöðu þeirri er veitti aðgang að sjóðnum, en tekur sömu breytingum og lífeyrir annarra eftir að taka lífeyris hefst. Eigi sjóðfélagi réttindi hjá sjóðnum vegna þriggja ára eða lengri greiðslutíma reiknast lífeyrir þó samkvæmt reglum 3. og 4. mgr. 2. gr. Hafi hann gegnt stöðunni skemur en 32 ár skal lífeyrir barna hans ákveðinn þannig að full upphæð skv. 7. gr. skal margfölduð með hlutfallinu á milli þess ellilífeyris sem hann hefur öðlast rétt til og þess ellilífeyris sem hann hefði öðlast rétt til ef hann hefði gegnt starfinu í 32 ár.

8.2

Sé staða eða starf sjóðfélagans lagt niður á hann rétt á að vera áfram í sjóðnum og greiða iðgjöld sem miðuð séu við þau laun er hann hafði er staða hans var lögð niður og frá þeim tíma skulu iðgjaldagreiðslur síðan breytast til samræmis við meðalbreytingar sem verða á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu, sbr. 3. mgr. 2. gr.

9. gr Flutningur milli sjóða.

9.1

Nú flyst starfsmaður er verið hefur í Eftirlaunasjóð starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar í starf sem veitir aðgang að öðrum lífeyrissjóði, sem stofnaður er með lögum, og má þá endurgreiða með vöxtum öll iðgjöld sem greidd hafa verið í sjóðinn hans vegna, þegar að töku lífeyris kemur. Það er skilyrði fyrir þessari endurgreiðslu að hún gangi til kaupa á lífeyrisréttindum fyrir viðkomandi mann í þeim sjóði er hann flyst til. Þó má aldrei endurgreiða hærri upphæð en þarf til þess að kaupa réttindi í hinum nýja sjóði er svari til þess starfstíma er sjóðfélaginn hafði öðlast.

9.2

Sjóðsstjórninni er heimilt að nota sömu endurgreiðslureglu þegar sjóðfélagi flyst í annan sjóð sem viðurkenndur er af fjármálaráðuneytinu, eða kaupir sér lífeyri hjá tryggingafélagi eða stofnun sem starfar eftir reglum er fjármálaráðuneytið samþykkir, enda gildi þar sömu reglur um endurkaup og greiðslu lífeyris eins og ákveðnar eru í þessum samþykktum.

9.3

Á tilsvarandi hátt er sjóðsstjórninni heimilt, að fengnu samþykki bæjarsjóðs eða fyrirtækis, að veita viðtöku, vegna manns er gerist sjóðfélagi í þessum sjóði, fé því er kann að vera endurgreitt hans vegna úr sjóði, tryggingafélagi eða stofnun, sem að framan greinir, og veita honum réttindi í samræmi við það.

9.4

Einnig getur stjórnin, þegar sérstaklega stendur á, og með samþykki bæjarsjóðs eða fyrirtækis, heimilað réttindakaup aftur í tímann þó að ekki sé um að ræða yfirfærslu á réttindum annars staðar frá. Það skal meðal annars sett sem skilyrði fyrir slíkum réttindakaupum að mælt sé með þeim af forstöðumanni þeirrar stofnunar er starfsmaðurinn vinnur hjá, að gengið sé frá réttindakaupunum innan árs frá því starfsmaðurinn var ráðinn og að starfsmaðurinn sé eldri en 35 ára þegar hann öðlast aðgang að sjóðnum.

9.5

Heimilt er að endurgreiða iðgjald til erlendra ríkisborgara sem flytjast úr landi, enda sé slíkt ekki óheimilt samkvæmt milliríkjasamningum sem Ísland á aðild að.

10. gr Tilhögun greiðslu lífeyris.

10.1

Lífeyrir greiðist með 1/12 árslífeyrisins fyrir fram á hverjum mánuði.

10.2

Nú nær mánaðarleg greiðsla lífeyris ekki kr. 3.077 á mánuði, og er þá heimilt að inna greiðsluna af hendi í einu lagi í samræmi við tillögur tryggingastærðfræðings. Fjárhæð þessi tekur breytingum til samræmis við breytingar sem verða á vísitölu neysluverðs miðað við 410,7 fyrir mars 2013.

11. gr Ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins.

11.1

Hafnarfjarðarkaupstaður ábyrgist skuldbindingar Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar.

Ákvæði til bráðabirgða.

Lífeyrir fyrir stofnun sjóðsins (1.9.1956).

I.I

Sjóðfélagar, sem fyrir stofnun sjóðsins hafa verið í þjónustu Hafnarfjarðarkaupstaðar eða stofnana, sem fengið hafa aðgang að sjóðnum, og þá fullnægt ráðningarskilyrðum gr. 1.1 skulu fá lífeyrisrétt fyrir þann starfstíma svo sem hér segir:

I.II

Eftirlaunin eru fundin þannig, að fyrst er fundið hve marga hundraðshluta af launum hvert ár, sem þeir hafa greitt iðgjald til sjóðsins gefur í eftirlaun, samkvæmt gr. 2.2. Hvert starfsár fyrir stofnun sjóðsins gefur 100% af ársmeðaltalinu eftir að iðgjaldagreiðslan hófst.

I.III

Örorkulífeyrir ákvarðast út frá áunnum eftirlaunarétti með sama hætti og hjá öðrum sjóðfélögum.

I.IV

Eigi einhver sjóðfélagi betri lífeyrisrétt en hér greinir vegna fyrri samþykktar bæjarstjórnar Hafnarfjarðarkaupstaðar, heldur hann þeim rétti.

I.V

Lífeyrir, sem greiddur kann að verða vegna starfstíma fyrir stofnun sjóðsins, skal endurgreiddur úr bæjarsjóði eða af þeirri bæjarstofnun eða sjálfseignarstofnun, sem í hlut á.