Fara í efni

TR býður upp á fræðslufund 17. september

Við vekjum athygli á fræðslufundi á vegum Tryggingastofnunar sem haldinn verður þriðjudaginn 17. september kl. 16.00 – 18.00 í Hlíðarsmára 11 um ellilífeyrismál. Á fundinum verður farið yfir allt sem snýr að umsóknum um ellilífeyri hjá TR, greiðslufyrirkomulag og fleira.

Á vef Tryggingastofnunar segir:

„Unnur Kristín Sigurgeirsdóttir, teymisstjóri ellilífeyris hjá TR kynnir umsóknarferlið og umgjörð ellilífeyrisgreiðslna hjá TR. Á fundinum setjum við fram góðan vegvísi fyrir þau sem eru að huga að starfslokum. Þetta þarf ekki að vera flókið og því kjörið að koma og kynna sér málin.“

Öll sem telja sig þurfa upplýsingar um ellilífeyriskerfi almannatrygginga eru hvött til að mæta.

Þau sem stefna á að mæta eru beðin um að skrá sig hér

Upptaka af kynningunni verður síðan aðgengileg á vef TR.
 

Tryggingastofnun - hausmynd