24.03.2020
Almennt
Samkvæmt lánareglum sjóðsins ákvarðast breytilegir vextir lána ársfjórðungslega en næsti stjórnarfundur verður 6.apríl n.k. Við vaxtaákvörðun á breytilegum verðtryggðum og óverðtryggðum vöxtum er einkum horft til ávöxtunarkröfu slíkra ríkisskuldabréfa á markaði og/eða almennra vaxtakjara á markaði á sambærilegum lánum Ef stjórn tekur ákvörðun um breytingar á vaxtakjörum lána verða upplýsingar um það birtar á heimasíðu sjóðsins um leið og þær liggja fyrir.