12.12.2023
Almennt
Ísland.is hefur gefið út að innskráning með Íslykli mun falla úr gildi um áramót.
Einstaklingar geta áfram notað rafræn skilríki í gegnum símann eða notað Auðkennisappið sem virkjast við notkun á íslensku vegabréfi.
- Íslendingar búsettir erlendis geta notað Auðkennisappið.
- Varðandi önnur eða erlend rafræn skilríki, þá er ekki fyrirhugað að koma þeim í notkun á Ísland.is
- Erlendir sjóðfélagar, búsettir erlendis, geta því ekki nálgast greiðslutilkynningar eða aðrar upplýsingar á Ísland.is.