Fara í efni

Garðar Hilmarsson formaður stjórnar Brúar lífeyrissjóðs

Garðar Hilmarsson var kjörinn formaður stjórnar Brúar lífeyrissjóðs af sjóðstjórn þann 24. október sl. og Kristbjörg Stephensen var kjörin varaformaður stjórnar. Samkvæmt samþykktum sjóðsins kýs stjórnin formann og varaformann sjóðsins á tveggja ára fresti. Kristbjörg Stephensen var formaður stjórnar á síðasta tímabili, eða frá október 2014.