Samræma frestun við lífeyrissjóði
Líkt og hjá lífeyrissjóðum er hægt er að fresta töku lífeyris hjá Tryggingastofnun. Heimild til frestunar hjá Tryggingastofnun er þó bundin því skilyrði að viðkomandi hafi ekki fengið greiddan lífeyri frá lífeyrissjóðum (1. mgr. 19. gr. laga um almannatryggingar nr. 100/2007).
Miðað við upphafsdag úr fyrsta sjóði
Upphafsdagur töku ellilífeyris úr lífeyrissjóði telst viðmiðunardagur fyrir frestun hjá Tryggingastofnun. Ef einstaklingur hefur aðeins sótt lífeyri úr einum sjóði af mörgum, svo sem eingreiðslu lífeyris, þá miðar Tryggingastofnun við upphafsdagsetningu úr þeim fyrsta sjóði.
Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun hefur ákvæðinu hingað til ekki verið framfylgt en því var breytt frá og með 1. janúar 2025. Breytingin mun aðeins gilda um þá sem eru fæddir 1958 og síðar.
Sem dæmi má nefna einstakling sem verður 67 ára í janúar 2025 og sækir um ellilífeyri Tryggingarstofnunar frá og með 1. mars 2025 á rétt sem nemur einum mánuði í frestunarhækkun ef hann hefur ekki hafið töku lífeyris úr lífeyrissjóði. Ef hann hefur hafið töku úr lífeyrissjóði fyrr, t.d. frá og með 1. september 2024 þá er viðmiðunarmánuður frestunarhækkana sú dagsetning og hann mun því ekki eiga rétt á frestunarhækkun hjá TR.
Þetta hefur ekki áhrif á þá einstaklinga sem óska eftir að byrja hjá TR fyrir 67 ára aldur. Þeir þurfa að vera búnir að sækja um og fá samþykkta snemmtöku úr öllum lífeyrissjóðum.