Brú hefur skrifað undir viljayfirlýsingu gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC) um fjárfestingu fyrir 323 milljónir Bandaríkjadala, eða rúmlega 42 milljarða króna, í verkefnum sem tengjast hreinni orku og loftlagstengdum verkefnum fram til ársins 2030. Í eignasafni Brúar eru nú þegar fjárfestingar fyrir rúmlega 12 milljarða króna sem flokkast undir skilgreiningu slíkra grænna fjárfestinga og áhersla á grænar fjárfestingar er í samræmi við stefnu Brúar um ábyrgar fjárfestingar.
Brú er þar með einn af þrettán íslenskum lífeyrissjóðum sem samanlagt ætla að fjárfesta fyrir 4,5 milljarða Bandaríkjadala, um 580 milljarða króna, í slíkum verkefnum fram til ársins 2030. Heildarmarkmið norrænna og breskra lífeyrissjóða sem standa að CIC eru 130 milljarðar Bandaríkjadala.
Formlega var þátttaka íslensku lífeyrissjóðanna kynnt í morgun á loftlagsráðstefnu sameinuðu þjóðanna, COP26, í Glasgow í Skotlandi. Með yfirlýsingunni er staðfestur vilji sjóðanna til að stórauka grænar fjárfestingar sínar og styðja þannig við markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Þar er meðal annars horft til ákvæða Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
Climate Investment Coalition (CIC) eru alþjóðleg samtök með það markmið að stuðla að aukinni fjárfestingu í hreinni orku og öðrum umhverfislausnum, svo sem nýtingu jarðhita, vindorku, sólarorku, bættrar orkunýtingar í byggingum og bættri tækni við flutning raforku.
Nánari upplýsingar er að finna í:
Fréttatilkynningu íslensku lífeyrissjóðanna
Fréttatilkynningu Climate Investment Coalition