14.02.2023
Almennt
Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.
Verðtryggðir breytilegir vextir verða 2,8%, óverðtryggðir breytilegir vextir 7,3% og vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 8,3%. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.