19.09.2022
Almennt
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.
Verðtryggðir breytilegir vextir verða 1,7%, óverðtryggðir breytilegir vextir 6,6% og vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 7,6%. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.