11.02.2025
Almennt
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum sjóðsins. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með breytilega vexti með að lágmarki mánaðarfyrirvara.
Verðtryggðir fastir vextir verða 4,2%, verðtryggðir breytilegir vextir 4,3%, óverðtryggðir breytilegir vextir útgefinna lána verða 8,5% og óverðtryggðir breytilegir vextir viðbótarlána 9,5%.