Fara í efni

Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum sjóðsins. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með breytilega vexti með mánaðarfyrirvara.

Verðtryggðir fastir vextir verða 4,4%, verðtryggðir breytilegir vextir 4,3%, óverðtryggðir breytilegir vextir útgefinna lána verða 8,9% og óverðtryggðir breytilegir vextir viðbótarlána 9,9%.

Sjá nánar í vaxtatöflu.