03.11.2022
Almennt
Lífeyrisaukaiðgjald í A deild Brúar lífeyrissjóðs mun hækka frá og með 1. janúar 2023 og verður þá 8,9% í stað 7,0%. Þessi hækkun er byggð á útreikningi tryggingastærðfræðings sjóðsins.
Þeir launagreiðendur sem greiða lífeyrisaukagjald þurfa því ganga frá viðeigandi stillingum í launakerfum sínum fyrir iðgjaldaskil vegna janúarmánaðar 2023 þannig að heildarmótframlag vinnuveitanda verði 20,4% (11,5% og 8,9%).
Sé frekari upplýsinga óskað er hægt að hafa samband við iðgjaldadeild sjóðsins með því að senda tölvupóst á skilagreinar@lifbru.is eða hringja í síma 540-0700.