03.10.2023
Almennt
Námskeið á vegum TR, Allt um lífeyri - þetta þarf ekki að vera flókið, var haldið 27. september síðastliðinn. Upptaka af námskeiðinu verður aðgengileg næstu fjórar vikur og má finna hana á vefsíðu Tryggingastofnunar.
Smelltu hér til að sjá upptöku af námskeiðinu.
Á námskeiðinu fjallaði Unnur Kristín Sigurgeirsdóttir um umsóknarferlið og umgjörð ellilífeyrisgreiðslna hjá TR. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi var gestafyrirlesari á námskeiðinu og fór meðal annars yfir:
- Lífeyrissjóðina
- Ólíkar tegundir séreignarsparnaðar
- Skattamál
- Erfðamál
- Öryggi maka
- Undirbúning starfsloka