13.04.2022
Almennt
LSR
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður haldinn miðvikudaginn 11. maí kl. 12:00 í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs, Sigtúni 42, Reykjavík.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur 2021
- Tryggingafræðileg athugun
- Fjárfestingatefna sjóðsins kynnt
- Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
- Kynning á breytingum á samþykktum sjóðsins
- Önnur mál
Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn en óskað er eftir að þeir tilkynni mætingu til sjóðsins á netfangið lifbru@lifbru.is eða í síma 5400700.
Reykjavík, 4. apríl 2022
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar