09.04.2021
Almennt
LSR
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður haldinn miðvikudaginn 12. maí kl. 13.00 í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs, Sigtúni 42, Reykjavík.
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur 2020
- Tryggingafræðileg athugun
- Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
- Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
- Kynning á breytingum samþykkta sjóðsins
- Önnur mál
Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétttil fundarsetu á ársfundinum.
Vegna samkomutakmarkana er óskað eftir að aðilar skrái þáttttöku sína á fundinn með því að skrá sig hér eða hafi samband við skrifstofu sjóðsins í síma 5400 700 eða með tölvupósti á lifbru@lifbru.is.